Falabella minnsti hestur í heimi Falabella hesturinn er minnsti hestur í heimi - meðalhæð á herðar er 70 cm. Hann er svokallað ‘tilbúið’ hestakyn og var það Falabella-fjölsyldan í Argentínu sem hóf ræktun milli tveggja kynja : Shetlands-smáhestsins og smárra Thoroughbreed-hesta sem er sannkallað gæðingakyn, enda eru og voru fremstu hlaupahestar í heimi af Thoroughbreed-kyni. Svo hóf Falabella-fjölskyldan innræktun á þessum hrossum í fleiri ár og úr varð hið smáa hestakyn Falabella. Gen þeirra stökkbreyttust við innræktunina sem gerði hrossin afar veikbyggð.
Falabella-hestanir eru ekki notaðir til reiðar enda mjög veikbyggðir. Þeir eru helst notaðir sem gæludýr, sýningardýr eða í létta sveitavinnu (t.d. draga litla vagna). Aðall þeirra er mikil greind og þeir eru fljótir að læra. Þeir þykja einnig geðgóðir og eru því afar hentugir sem félagar fyrir börn.
Hestarnir hafa fíngerðan feld og silkimjúkt fax/tagl. Þeir eru afar fíngerðir, hafa falleg augu og dúllulegt andlit. Þeir búa yfir feti, brokki og stökki og eru þeir mjög kraftmiklir og kátir undir sjálfum sér. Nær alla liti má finna innan kynsins, en brúnt og svart er mjög algengt. Þeir ná háum aldri - geta orðið 40-45 ára gamlir.
“Suicide hotline… Please hold”