Ætla að segja ykkur hvað ég “skemmti” mér vel árið 2002-2003.

Sko ég átti Brúna meir sem heitir Kolfinna og hún var bara í morðhugleiðingum eða einhvað er ekki allveg að fatta það sko.
EN ég skal lýsa hvað hún gat gert með mig : bakkað, rokið, kastað , skvet :)
Frökenin KASTAÐI mér af baki örugglega um svona 50 sinnum og gerði mig að miklu fífli í hverfinu :)
í næstseinasta skiftið sem hún kastaði mér þá tognaði ég ILLA á löppini og gat ekki labbað rétt í nokkra mánuði !!! en svo þegar ég varð orðin altílagi í löppini þá fór ég aftur á bak og auðvita kastaði hún mér AFTUR ! og þá fékk ég pínu heilahrysting en það var í lagi.
Þá bara fékk ég nýjan hest Rauðan gelding sem átti að vera barnahestur en greinilega ekki því hann bara hrekti og rauk með mig …. svo ég skilaði honum og Hrefna mín bauðst til að lána mér Storku múhaha en hún er bara einsmannshestur svoooo ég afþakkaði “gott” boð.
SVO fór ég í íshesta með Kolfinnu og gerði skifti við þau þar og fékk minn frábæra hest Silver/Sorta EN ég auðvita þorði ekki aftur á bak í nokkra mánuði .
EN loksins þegar ég fór aftur á bak þá þurfti ég auðvita að byrja aftur upp á nýtt… fara BARA inn í gerði því ég þorði´ekki út fyrir það og svo auðvita mín fína systir teymdi mig útum allt á FETI :) híhíhí en núna er ég byrjuð að þora að fara 1 án þess að láta hana teyma mig :D JEIJ !!! en missi jafnvægið niður brekkur *gaman* … svo bara fyrir nokkrum dögum fór ég á valhopp á Silver/Sorta mínum í hverfinu *STOLT*
En bara 1 sem er núna eftir er að æfa sig að fara hægra megin á bak því ég næ ekki að fara þeim megin útaf mér er en illt í helvítis löppini eftir þessar meri :(

Svo hef ég alltaf sagt að ég mun ALDREI éta hrossakjöt EN ég mundi sko éta Kolfinnu með BESTU LIST !

Kveðja
Anna sem fór á valhopp aftur í gær (ég segi nú að þetta var STÖKK en snillingurinn hún systir mín segir að þetta var valhopp…. hvað veit hún ekki hefur hún dómararéttindi ! )