Það er enginn tilgangur með lífi á jörðinni. Við svömlum um í gjörsömu volæði og eymd og reynum að deyfa okkur fyrir tilgangsleysi veraldarinnar með samförum og alkahóli. Það er frábært að lifa en algjörlega tilgangslaust. Það er nefnilega sama hvað við gerum, við deyjum, og sama hvað við breytum heiminum og gerum hann betri þá deyjum við og rotnum neðanjarðar alveg rænulaus, og þótt að allar manneskjur jarðarinnar og öll dýr jarðarinnar væru ofan á gröfinni að hilla okkur og þakka okkur fyrir betra líf þá erum við samt dáinn og heyrum ekki neitt.
Dauðinn gerir það, að allt sem við gerum eða afrekum í lífinu verður tilgangslaust.