Góðan daginn.

Ég hef lengi verið að velta fyrir mér í hverju pirringur er fólginn. Sérstaklega eftir að ég fór að vinna hérna í sumar með þessum ákveðna mjög pirrandi aðila. ;)

Er ástæðan fyrir þessu sú að ég læt hann fara í taugarnar á mér, eða er hann að reyna að fara í taugarnar á mér..hef lengi velt fyrir mér því.
Grey krakkinn er ávalt hreinlega að fara í taugarnar á mér, með lang flestu sem hann gerir, jah..eiginlega öllu.
Ég mun ekki neita því að oft læt ég hann fara í taugarnar á mér þegar það er engin sérstök ástæða fyrir því..en krakkaandskotinn er bara svo ótrúlega pirrandi…

Jæja, ég læt þetta nægja í bili, Jón Þór er á leiðini og ég fer þá.

Kveðja,
Ómar K.<br><br>Reason is immortal, all else mortal.
-Pythagoras
Reason is immortal, all else mortal.