Hvergi í heiminum er til réttarfarskerfi sem fangelsar bara seka. Eitthvað hlutfall hinna fangelsuðu munu alltaf vera saklausir. En ímyndum okkur að við hefðum kristalkúlu sem gæti sagt okkur hverjir yrðu morðingjar. Hún væri ekki fullkomlega áreiðanleg, en gæfi upp helmingi færri saklaus nöfn en núverandi aðferðir finna seka.

Hvað ættum við að gera við slíka kristalkúlu? Hvað ef hún væri með fullkomna spágetu?

Við skulum til einföldunar gera ráð fyrir því að allir morðingjar drepi af ásettu ráði og eigi skilið fangelsun.