Hitler, Josef Fritzl, Josef Mengele, George Bush, Saddam Hussein, og svo lengi mætti telja…
Allt eru þetta menn sem eru búinn að gera einhvern fjandan af sér og ég spyr, hvar er eiginlega guð þegar þessir menn leika lausum hala og gera allan andskotan af sér?
Hvar er guð þegar heimilisofbeldi, nauðganir, morð, líkamsárásir og pyntingar eiga sér stað?
Hvar er guð þegar fólk grætur sig í svefn, er lamið sundur og saman, upplifir ástarsorg, er nauðgað, missir börnin sín, er alvarlega veikt andlega og svo lengi mætti teja?
Hvar er guð þá?
Hvar er guð þegar manni líður hreint og beint ömurlega?
Hvar er guð þegar maður grætur sig í svefn, þegar börn horfa upp á foreldra sína djúpt sokkna í neyslu eða blindfullt dag eftir dag, þegar maður þarf að horfa upp á einhvern nákomin deyja hægt og rólega?
Hvar er guð þegar þér finnst þú einn í heiminum?
Hvar er guð þegar þú vilt ekki lifa? Hvar er guð þegar þú íhugar það að taka eigið líf, og jafnvel framkvæmir það?
Hvar er guð þegar þú ert lagður í einelti? Hvar er guð þegar þér finnst þú ekki nógu góð/ur? Hvar er guð þegar það er hraunað yfir þig dag eftir dag útaf einhverju sem þú getur ekkert gert af? Af hverju hatar guð samkynhneigða ef að það eru allir menn jafnir fyrir hans augum?
Ef að guð lætur þetta viðgangast, hvað segir það þá um hann?
Hefur hann gaman að því að sjá fólk þjást?

Ég bara spyr.
Það hefur aðeins verið einn sannkristinn maður, og hann var krossfestur greyið.

Anyways, var bara að pæla í þessu.