Ég var að velta þessu fyrir mér þegar ég var að horfa á viðgerðirnar sem er verið að klára við Hallgrímskirkju. Ég var að spá semsagt hvernig standi á því að fólk fari ekki fram á frekari sannanir á tilvist guðs áður en það felur sig á vald trúarleiðtoga.
Það er ekki eins og við séum að tala um tannálfinn eða álíka fyrirbæri heldur eru prestar og klerkar sennilega með valdamesta fólki í heimi. Páfinn til dæmis og ayatollah Khomeini í Íran eru feykilega valdamiklir.
Ég velti þessu sem sagt fyrir mér hvernig fólk geti sætt sig við að menn, venjulegir menn, hafi þessi ótrúlegu völd? Hvers vegna fer fólk ekki fram á sannanir áður en það gúdderar þetta? hvað finnst ykkur, er þetta gild pæling eða er ég í ruglinu?