Eftir miklar spökuleringar og hugsun á því hverjar líkurnar á því að vinna í lotto'i væru ákvað ég að spyjarst fyrir hér.

í lottoi eru dregnar 5 tölur með 38 möguleikum hver, hverjar eru líkurnar á því að fá allar tölur réttar?

Málið er það að eftir smá tíma með reiknivélina komst ég að því að líkurnar hlytu að vera 1/38*1/38*1/38*1/38*1/38=1/79235168 eða 38**5=79235168.

En eftir nokkrar pælingar áttaði ég mig á því að þetta gæti ekki staðist þar sem það skiptir ekki máli í hvaða röð maður fær tölurnar, heldur bara að maður fái þær réttu, ekki rétt?

Svo að lokaspurningin er þessi: Hverjar eru líkurnar á því að vinna í íslensku lottói?