Ég var bara að spá.
Hvað ef geimverur eða eitthvað æðra vitsmunalíf hafði bara einn daginn ráðist inn í heiminn okkar og stolið öllu mannkyni og sett okkur í svona hugarstjórnunarvél, þannig að okkur líður eins og við séum hérna, en erum í rauninni í einhverjum hylkjum sem eru tengd við heilann í okkur þannig að allt virðist vera raunverulegt.

Eða þá, ég hef verið að pæla geðveikt í þessu… Að hérna kannski er ég bara forseti mannkyns og mér var rænt af einhverjum óþekktum og sett í svona svipaða vél eins og ég sagði frá þarna að ofanverðu og þeir sem halda mér heimta lausnargjald af mannkyni ef þau vilja mig aftur. En á meðan lifi ég lífi sem stelpa á fermingaraldri í mínum eigin hugarheimi. En mannkyn vill mig bara alls ekki vegna þess að ég er svo leiðilegur stjórnandi.