Ég er mikið búin að pæla í hvoru ég eigi að trúa, eftir að ég fór í messu á sunndaginn síðastliðinn fór ég að hugsa hvað ef við værum öll að fara í messu á hverjum sunnudegi og svo deyr maður bara og allt biss bang búmm. Allt byrjaði með einhverjum blossa og risaeðlum og svo fóru apar að þróast í menn sem eru þá æðstu skepnurnar á jörðinni.

Eða þá að Guð sé til, en hvað hugsa þá t.d. múslímar og búddar og kaþólskir, ætli sé til annað sér himnaríki fyrir þá, og hver er þá tilgangur lífsins ??? Kúka, pissa, fæðast, éta, skóli, vinna, deyja.
Man United, Flight of the Conchords, Family guy