Aftur og aftur kemur þessi pæling með eggið og hænuna upp..og fólk getur endalaust rifist um þetta. Hvort kom á undan?

Jú..samkvæmt þróunarkenningunni þá eru fuglar komnir af eðlum. Þá hefur eitthvað, sem hefur verið forfaðir hænunar, skriðið úr eggi sem komið er frá eðlu.

….mín pæling er…..er eggið sem kom frá eðlunni og innihaldið var hæna(einhverskonar fugl)…hvort er eggið “hænu egg” eða “eðlu egg” ?