Varla á hann að vera heimspekingurinn, en þeir eiga vissulega nafnið sameiginlegt. Ef Locke í Lost á að vera tilvísun í John Locke (1632-1704), þá þarf kannski aðeins meiri líkindi með þeim. Ég horfi ekki mikið á Lost, kannski þú segir okkur hvort það sé eitthvað líkt með þeim…
Ég veit ekki hver heimspekingurinn John Locke er en John Locke í Lost er alltaf spurður álits og hann er alltaf með svörin fyrir öllu og allir trúa honum.
Ok, en það er ekki þar með sagt að hann eigi að vera heimspekingurinn eða standa fyrir eða tákna heimspekinginn. Það er auðvitað ekki útilokað að svo sé, en það væri gaman að fá þá líkindin með þeim.
Er Locke í Lost einhvers konar raunhyggjumaður? Eða er hann einhvers konar frjálshyggjumaður? Hefur hann samfélagssáttmálakenningu? Talar hann um uppreisnarrétt manna? O.s.frv.
Hann Locke trúir að allt “happens for a reason”, hann er ákveðinn og lætur nákvæmlega ekkert stoppa sig. Hann lenti í hjólastól af einhverjum ástæðum, gat ekki hreyft fæturna og þegar hann brotlenti á eyjunni voru þeir sem nýjir. Held að trúin hans að allt gerist fyrir vissri ástæðu hafi vaknað þá. Það eru reyndar búið að segja honum “Do not mistake coincident for fate” sem spilar reyndar stórt hlutverk að hann fær þá vitneskju þar að segja.
Ég var einmitt að pæla í þessu um daginn. Vegna þess að það er ekki bara hann, franska konan heitir líka Rousseau, en Rousseau var uppi á svipuðum tíma.
Þá fór ég að pæla í fleirum, en það eina sem ég fann var Charlie ~ Charles Darwin, en það er nú kannski svolítið langsótt. :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..