Ok, segjum að heimspeki sé hugarástand og að heimspekinám - ástundum heimspeki í skólum - sé fyrst og fremst nám í fræðigrein um þessa heimspeki (sem felst t.d. í að læra skipulega um sögu heimspekinnar, um tilteknar heimspekilegar rökræður, um notkun tiltekinna heimspekilegra hugtaka, um ákeðin viðfangsefni (sérsvið) innan heimspekinnar o.s.frv.). En sagðirðu ekki líka að hvaðeina sem maður tekur sér fyrir hendur í þessu ástandi verður heimspeki? Þá verður ástundun þessarar fræðigreinar að heimspeki sé maður í réttu hugarástandi þegar maður stundar fræðigreinina, ekki satt? Þannig að skv. þér getur ástundun fræðigreinarinnar sem fjallar um heimspeki verið heimspeki.
___________________________________