Ég veit ekki hvort að þetta á við á þessu áhugamáli, en það á allavega mest heima hér af öllum áhugamálunum hérna á huga.is
Þannig að here goes ..
Segjum sem svo að guð sé til, ef að þið gætuð hitt hann og spurt hann EINNAR spurningar .. að hverju mynduð þið spyrja hann ?
Þetta má bara vera ein spurning og ekki spyrja áfram útí málið .. ég hef allvega ekki hugmynd um hvað ég myndi spyrja hann.

Svo annað, ef að þið gætuð ferðast aftur í tímann í 10 mín. hvert og “hvenær” myndið þið fara ? Sumir myndu eflaust slátra Hitler í æsku, aðrir njósna um vinningstölurnar í ameríska ofurlottóinu með öfga háu vinningana ..
Ég myndi ferðast aftur til 1979 og sjá sjálfa mig fæðast, held að það væri ferlega grúví =)

Endilega komið með einhver svör :)<br><br>Zallý
———————————————–