Afhverju líkar mér við þennan en ekki hinn, afhverju er þetta með svona bragð en hitt er með öðruvísi bragð, afhverju fer ég stundum snemma að sofa við sömu aðstæður en önnur skipti seinna, afhverju gleymi ég sumu en öðru ekki afhverju man ég gagnslausa hluti en ekki mikilvæga.

Hversvegna fæddist ég hérna þennan dag þetta ár þessa mínútu, afhverju stóð ég mig vel í sumu en verr í öðru afhverju hef ég áhuga fyrir þessu og metnað en ekki hinu hversvegna dugar þrjóskan mér ekki í flestu er það afþví ég er ekki nógu þolinmóður eða einbeittur.

Afhverju dæmi ég á undan afhverju er ég þrjóskur afhverju læri ég ekki af öðrum og er ánægður fyrir að fá að snerta þeirra reynslu, afhverju hef ég hroka fyrir mér og mínu en ekki eins og fyrr ég gerði er ég hlustaði og lærði.

Hvaðan fékk ég þá hugmynd að vilja gera þetta í lífinu en ekki hitt afhverju datt mér í hug að fara alltíeinu hingað en ekki þangað meðan ég lofaði að fara á hinn staðinn, afhverju sýni ég ábyrgð í stundarfjórðung en ekki í klukkutíma, afhverju þrái ég framtíðina en ekki daginn í dag eða fortíðina, hvað er svona hryllilegt við þetta allt?

Hvaðan fékk ég þá hugmynd að veröldin væri alltaf jafn góð / vond eða almennt venjuleg hvenær byrjaði ég að festast í þessu fari, hvenær hætti ég að bera virðingu fyrir lífinu hvað er málið afhverju sit ég hér og skrifa í staðinn fyrir að sofa afhverju fór ég ekki að sofa í nótt og mætti snemma á þann stað er ég ætlaði mér ? Afhverju mun ég ekki hringja og láta vita af hvar ég er, sú spurning er mér ofviða.

The soul is but a maze for the mind and the mind is but a deception for the soul… so what true answers can one get out of life?

Hvert er ykkar svar við þessu? pælið með mér koma svo :D ekki sálgreina mig .. hvað finnst ykkur svarið við þessum texta? :)<br><br><font color=“#0000FF”>omegadeus</font