Hvað er ekkert?
Þetta er mjög skemmtileg spurning sem er oft spurð og er oft ein fyrsta spurningin sem spurð er í heimsspekitímum. Þegar ég var lítill hélt ég alltaf að ekkert væri eitthvað svart sem ekkert væri í en núna fór ég að pæla hvernig getur ekkert verið í ekkert þá hlytur að vera annað ekkert. Ekkert getur ekki verið bara eitthver lofttegund því lofttegund er ekki ekkert. Ég veit ekki hvað ekkert er og ég held að enginn heimspekingur hafi komið með neitt almennilegt svar við þessari spurningu og því bið ég um álit ykkar hugara hvað er ekkert?