Segjum svo að í einn sólarhring þá getið þið gert hvað sem ykkur dettur í hug og geta svo tekið allt til baka. Þegar sólarhringurinn er liðinn þá byrjar dagurinn alveg upp á nýtt eins og ekkert hafi í skorist. Skiljið þið mig? Þið gætuð drepið fullt af fólki og keyrt til dæmis inn í Kringluna og gert alls kyns skandala og komist upp með allt því að dagurinn byrjar hvort sem eð alveg upp á nýtt og enginn á eftir að vita að þið gerðuð þetta. Gerið þið grein fyrir því hvað það er til mikið af alls kyns lögum og reglum. Öllum finnst sjálfsagt að fara eftir þeim en af hverju í ósköpunum. Af hverju má maður ekki höggva mann og annan og fara í klessubílaleik og vera nakinn á almannafæri og segja asnalega hluti?! Hugsið ykkur ef þetta væri mögulegt að geta spólað til baka einn dag og gert allan andskotan. Þvílík útrás sem maður myndi fá út úr því og svakaleg upplifun sem maður myndi aldrei gleyma. Dagur sem maður fer ekki eftir neinum reglum án þess að það hafi einhverjar varanlegar afleiðingar. Hvað mynduð þið gera af ykkur? Hvað mynduð þið vilja prófa?