Alþýðlegar hugleiðingar á vísindalegum grunni um óþurft ofnotkunar algildra kennisetninga sem Afstæði er í manna á millum. Skrifað til Úlriks Ólasonar af einsærri andans þörf aðfaranótt fimmtudagsins 20 Maí Anno Domini 2004.

Ekkert skrítið er að ég skuli vaka stundum heilu næturnar og jafnvél daganna í einni lotu og skynji hvorki tíma né hungur tyllifinningu. Og þá er varla að ég skynji að ég sé bundinn líkamanum sem ég er fjötraður niður í, nema ef um þrísting við hægri og vinstri hlið fremst á toppstykkinu sé að ræða eða þá að ég skelli uppúr hljóði vegna hráslagleika (kulda) íróníunnar sem er að finna í tilvistinni hjá þeim er þann góða hæfileika hafa að geta séð húmorinn í honum (kuldanum) og brosa út í annað þó ekkert sé aðhlátursefnið. Ég er ekki að fara að finna upp hér neitt nýtt markvert lögmá Úlrik, nema þá aðeins að ég lýsi upp þá staðreynd að það sé hugmyndafræðilega mögulegt að færa rök fyrir því að ekkert sé endanlega afstætt í mannskeppunnar veröld, en það yrði of stór fullyrðing að nefna hér alheiminn til leiks. Þar sem hann hef ég ekki rannsakað né að fullu skilið, nema þá um sé að ræða í eilífðar lífinu og þá er sú vitneskja hulinn meðvitund minni og að sökum þess hefi ég engar minningar að geima um það viðfangsefni eða niðurstöður þess vitandi vits.

En hér ætla ég að færa rök fyrir að notkun algildra kennisetninga, eins og fullyrðinga um afstæði eins eða hins, sama hvaða nafni þær nefnast, sé mannkynninu beinlínis háskalegt sé litið til framaþórunnar þess, þar sem [maðurinn] fær þar tækifæri til þess að slá niður vilja frjálsra hugsuða til að rannsaka til hlítar flókinn viðfangsefni með notkun þeirra og gefur sér að endanleg niðurstaða hinna og þessara minni sem stærri viðfangefna sé „afstæð“ t.d. og því sökum þess órannsakanleg fyrirbæri vegna slíkra „óhagganlega lögmála“ sem kennisetning afstæðishyggjunnar er talinn vera af vitrum sem óvitrum, menntuðum sem ómenntuðum. Hver kannast ekki við það að hafa heyrt fullyrt þegar flóknum viðfangsefnum er haldið á lofti, og enginn skynsamleg rök fyrirliggjandi á tiltekinni stund, að viðfangsefnið sé afstætt og þá án þess að nokkurs skynsamlegs heilsteypts rökstuðnings sé haldið uppi fullyrðingunni til stuðnings! Oft er slíkum alhæfingum kastað fram fyrir skjöldu sem blautri tusku af aðilum er ekki hafa skilinning á mætti röklegarar hugsunar eða menntun í meðferð viðurkenndra vísindalegraðferða.

Þegar slíku er haldið fram án þess að færð séu fullgild rök fyrir upphrópunni má skilja það sem ásetning til að drepa með henni úrvinnslu við laus viðfangsefnisins á dróma, vegna þess að sjákrafa gangast menn við sökum vankunnáttu sinnar að þeim eru takmörk sett í heiminum og sjá því fyrir sér í toppstykkinu málið fuðra upp og dreifast í allar áttir í ómælisvíddum hugans. Það var nú einu sinni Einstein, Alberts er bar Afstæðiskenningu sína í heiminn árið 1905 byggða á hugmyndum honum eldri manna og vilja margar þessar meintu „skynsemisverur“ í sakleysi sínu gleypa þann öngull ofanný maga og trúa án gagngríninnar hugsunar að slíkt hið sama eigi við um einfaldari viðfangsefi sem oft vel sé mögulegt að fá í ásættanlega niðurstöðu í formi fasts mótaðrar kenninga byggða á viðurkenndum vísindalegum eða hugmyndarfræðilegum aðferðum, svo rökræða meigi niðurstöðuna og að mannskepnunni sé það mögulegt að halda áfram við vísinda- og hugmyndalega framþróun sem er henni aðeins til heilla til framtíðar litið fyrir. Það sem verður sagt „afstætt“ og ekki talið vert að sé tekið upp að nýja og að því sé gerð önnur atlaga af endurnýjum huga með þrótt og mettum af von og trú um skynsamlega niðurstöðu með úrvinnslu þætti hugans að fullu starfandi við að greina ólíka þætti viðfangsefnisins, án hættulegra alræðishugmynda um afstæði næstum hverz sem er. Vegna þessa má helst ekkert endanlega fyrirfram setja af og/eða dæma órannsakanlegt, án nákvæmrar rannsóknar á eiginleikum viðfangsefnisins framkvæmdri af hreinni skynsemisveru án trúar á fyrirfram ákveðinnar kennisetningar sem einungis skapa tómarúm í vísindunum sem allri heilbrigðri vitiborinni umræðu. Heimurinn skal verða rannsakaður af mönnum og má hann ekki láta kenningar um afstæði hans þvælast fyrir sér við framkvæmd þeirra rannsókna í framtíðinni.


Höfundur þessarar skoðana hefur frekari útskýringar máli sínu til stuðnings en sér sér ekki kleift vegna vandræðargangs og vankunnáttu við að setja þær myndrænt upp á þessari gefinni stundu

Örn.