Tilgangur lífsins. Já, þetta málefni virðist alltaf koma sér uppá yfirborðið. En ég er með nokkuð ágæta skýringu á ´tilgangi öllum þessum.
*ræsk*

Ég er með tvær tilgátur á tilgangi lífsins.

Sú fyrri er að tilgangur lífs okkar sé að skemmta okkur. Það er : láta okkur líða vel, því hvenar erum við í ástandi sem við viljum ekki fara úr? jú! þegar við erum ánægð, glöð,(gröð:)) og okkur líður vel. Það þarf ekki að vera “gaman”, bara vellíðan. Því ef við spyrjum okkur að því hvers vegna er ég að gera þetta hundleiðilega drasl? Það er vegna þess að eitthvað annað og skemmtilegra bíður eftir að þú ert búinn. Þú vinnur þína leiðinlegu vinnu því þú færð svo borgað og færð frí og getur gert eitthvað “skemmtilegt”.
Sumir segja að tilgangur lífsins sé að fjölga sér og tryggja afkomu tegundarinnar, þó að það sé mikilvægt er það ekki tilgangurinn, þó að kynlíf sé skemmtilegt er það ekki tilgangurinn að bara eignast börn. Ef við hefðum enga ánægju af kynlífi myndum við gera það? Og ef við myndum gera það myndum við ekki bara ljúka því af og hlaupa út og gera eitthvað gaman? En hver er þá tilgangur dýra? Ef þeirra tilgangur er að fjölga sér er okkar þá ekki það líka? Dýr eru flesst ekki nógu þróuð til að finna fyrir “skemmtun” eða vellíðan en þau sem eru það eru ekki nærri jafn þróuð og við og geta því ekki haft þann tilgang að skemmta sér. Því við erum eina tegundin sem tekur rökvísi fram yfir eðlisávísun og getum því hætt að hugsa um eingöngu að fjölga okkur.

En aðrir segja að tilgangur okkar sé að hafa tilgang. Það getuyr sumpart líka verið rétt. Hinn kenningin mín var ekki þannig að af því að ég segi það eigi allir að skemmta sér heldur er þetta leyndur tilgangur okkar sem kannski öll okkar eða ekkert okkar samþykir. En það að hafa tilgang og að skemmta sér kenningin er kannski ein og sma eða allavega tengd. Því ef við erum kannski þunglynd eða í annarlega ástandi og getum ekki eða minna notið einhvers þá má segja að tilgangur okkar séað hafa tilgang því ef við getum ekki skemmt okkur þá höfum við ekkert að gera og tilkgangur okka r er að vilja skemmta okkur aftur eða að geta skemmt okkur, þá er tilgangur okkar að hafa tilgang:)

Svo eru auðvitað margar aðrar hliðar á þessu sem myndi taka endalausan tíma að skrifa og ég vona að þær komi fram í umræðunum.