hæhæ,

jæja hef kannski ekki alveg staðið mig í stykkinu hérna, en ég hef góða og gilda afsökun fyrir því ;) veikindi, vinna og fjölskyldan. Er komin yfir þessi veikindi svo ég ætti að geta verið hérna meira.

Janúar tölur: vorum í sæti 106 með 4,338 flettingar :D það er glæsilegt…

Febrúar tölur: erum í sæti 89 með 5,873 flettingar… og vá það kalla ég framför :D mætti halda að allir væru að flytja eða endurnýja heimilið sitt ;)

en já núna í mars vil ég fá að sjá meiri framför :) verum svo dugleg að horfa á Hæðina á stöð2, þátturinn byrjar á fimmtudaginn þann 20.mars

kv. Jaguar1957