Hæ öllsömul!
Fyrst að þið eruð að óska eftir ýmiskonar heimilistækjum þá ætla ég að slá til og gera það líka.
Ég er tiltölulega nýbyrjuð að búa, rúmt ár síðan ég flutti að heiman, og vantar enn ýmislegt til að geta flokkast undir alvöru húsmóður.
Mig vantar hluti eins og ryksugu, straujárn, örbylgjuöfn og svo er draumurinn að eignast hrærivél, á ekki auka 40.000 til að splæsa í nýja, og örrugglega langt í að ég gifti mig, þannig að ég bíð (vonandi) ekki eftir að fá eina slíka í brúðargjöf.
Þannig að ef eigið eitthvað að þessum hlutum sem þið viljið losna við fyrir smá pening endilega sendið mér skilaboð eða svarið póstinum.
Kveðja, Dagný