hæ.. þetta er sko löngu tímabært og frábært áhugamál.. loksins fann ég mér samastað á hugi.is :) ég var að kaupa mér íbúð sem ég fæ afhenta í okt. og þar er lítill stigi í íbúðinni en ekkert handrið :/ mig langar alveg rosalega að fá fallegt smíðajárnshandrið…. þetta er ekki hár stigi.. kannski 3 metrar..

ég veit um nokkra staði sem eru að selja svona en er ekkert búin að kynna mér þetta þar sem það er ennþá nokkuð í að ég flytji inn og væntanlega enn lengra þar til ég fæ mér slíkt handrið… En svo ég komi mér að efninu: veit einhver svona sirka hvað svona handrið gæti kostað?? bara einfalt nb.. engar rosarósettur eða neitt :)