Hæhæ.

Ég er nýbúinn að kaupa mínu fyrstu íbúð , í Kópavoginum .. nánar tiltekið í Kjarrhólma.

Þetta er mjög hugguleg, 3ja herbergja íbúð með stórri stofu, fínu eldhúsi, þvottahúsi og góðum og stórum svölum.

Ég er sjálfur 23ja ára strákur sem hef alltof gaman af tónlist, en í íbúðinni eru mörg hljóðfæri og því kemur enginn annar til greina en einhver sem hefur gaman af tónlist. .. eða einhver sem allaveganna hatar ekki músík :)

En já…. Leigan á mánuði yrði 60 þúsund, og þá er innifalið hiti, rafmagn, internet og einhverjar sniðugar sjónvarpstöðvar (helst enski boltinn).

Þetta er nánast laust nú þegar .. en kannski betra að fá einhvern 1.júní … en auðvitað má skoða allt saman.

Ég held að það sé skynsamlegra að auglýsa eftir einhverjum strákum , frekar en stelpum, þar sem ég er að deita stelpu. . myndi koma illa út að vera með aðra stelpu á heimilinu :)

En þið hafið bara samband … og þá helst í emaili : binni29@gmail.com
.. en einnig getið þið bara svarað mér hérna.

Lifið heil.

Kveðjur.

Binni.