Jæja, hérna er ég með u.þ.b. 1 árs gamlann sjónvarpsskáp til sölu! Hann hefur reynst mér mjög vel, en vegna breytinga í herberginu passar hann ekki lengur inní herbergið. Mig minnir (ekki alveg viss hehe) að hann hafi verið keyptur í TM Húsgögnum fyrir um einu ári síðan.

kápurinn er ljós á lit (hlynarlíki) og er á hjólum. Á skápnum sjálfum eru tvær dökkar glerhurðir og inní skápnum eru tvær færanlegar hillur þar sem hægt er að geyma DVD spilara, leikjatölvu, dvd myndir, leiki, ásamt öðru.
Ofan á skápnum sjálfum er snúningsplata og inní henni er hæglega hægt að geyma DVD spilara, VHS tæki og jafnvel heimabíómagnara.Ofan á snúningsplötunni er síðan sjónvarpið geymt. (Sjá meðfylgjandi myndir)


Skápurinn er u.þ.b. 77 cm á hæð, 46 cm á dýpt og 70 cm á breidd.


Skápurinn er í FULLKOMNU ástandi og sést nákvæmlega ekkert á honum. Þegar ég keypti hann fyrir tæpu ári síðan kostaði hann 10 þúsund kr. og ég ætla að selja hann á 5000 kr.

Á slatta af góðum myndum af honum en ég kann ekki að setja inn myndir:/..svo ef að þið hafið áhuga, þá get ég sent ykkur myndirnar á MSN eða í tölvupósti! ;)