Ég var að pæla, eru margir sem eiga svokallaða “mistmaker”?

Kærastinn minn keypti þannig þegar hann bjó í Bandaríkjunum, þetta er fjári sniðugt finnst mér.

Þetta er til í alls konar stærðum og gerðum. Hans er svona klettur, laug fyrir neðan, og stór dreki stendur efst á klettinum. Maður setur smá vatn í þetta, og einhverskonar ilm-olíu, og þá kemur þoka úr lauginni og góð lykt.

Við eigum svo nokkrar tegundir af olíu, meðal annars Sítrónu, sem er uppáhaldið mitt :)