Góðan daginn,
Mig langar að koma því að hvað ég og konan mín erum svo hissa á þessa dagana, hversu mikið minimalismanum sé tranað fram í Innlit Útlit, Veggfóðri, Hús og Hýbýli og fleiri miðlum. Við bara náum þessu ekki !! Og við þekkjum fullt af fólki sem er alveg sammála og vill hafa heimilin sín hlýleg og með fallegum hlutum en ekki tómum borðum og veggjum út um allt ! Það er eins og engin búi á þessum heimilum? Hvar eru bækurnar, tímaritin, myndirnar og allt það sem segir eitthvað um íbúana ? En samt heyrði ég einhvern spekúlant á einhverjum miðlinum segja að nú væri þetta að líða undir lok, svo ég bara bíð spenntur !!