Var að reyna að finna á netinu sumarbústaði til leigu nálægt höfuðborgarsvæðinu en finn ekkert :(
Þannig er að mig vantar frekar stóran bústað til að hafa smá brúðkaupsmóttöku í. Geri ekki ráð fyrir að allir gisti en þarf þó að hafa svona ca. 10 sefnpláss. Þetta þarf ekki að vera neitt fínt því við ætlum bara að grilla og syngja og kannski einhverjir leikir. Semsagt bara afslappelsi og gaman. Nenni ekki að halda einhverja veislu þar sem maður bíður fullt af fólki sem maður þekkir ekki neitt og gerir ekkert annað en að heilsa öllum og hafa engann tíma til að skemmta sér (hef séð það gerast).

Veit einhver um eitthvað svona? Við erum nefnilega í bæði í námi og höfum þess vegna engin réttindi í félögum.
Þetta mætti vera í mesta lagi 2ja tíma akstur frá bænum og við erum að spá að gera þetta í september.

Allar hugmyndir og ábendingar vel þegnar.<br><br>kv. KaJa2
kv. KaJa2