Ég var eitthvað um 7 ára þegar ég fékk herbergið mitt og þá vildi ég láta mála það bleikt með bleik gluggatjöld en nú finnst mér það ótrúlega barnalegt. Mig langar rosalega að mála það í einhverjum öðrum lit en pabbi minn vill ekki einu sinni hugsa um það. Hvað á ég að gera?