Skipt um gólf Jæja þá er komið að framkvæmdum.
Núna verðum við að skipta um gólf í forstofunni.
Gólfið tók nefnilega upp á að fara að brotna undan okkur, og í ljós kom að það er kjallari undir húsinu sem er með sirka 2 metra lofthæð.
Við ákváðum að skipta bara um plötur í gólfinu og láta annað eiga sig allavega í bili.
Það er svona að búa í mjög gömlu húsi.