*Lúðrahljómar*

Já! Þið lásuð rétt! Nýtt greinaátak!

Að þessu sinni er það “Íbúðir sem ég hef búið í”. Okay, ekki beint þjálasti titill, en mér datt ekkert betra nafn í hug yfir þetta.

Þú ætlar að skrifa um allar þær íbúðir sem þú hefur búið í. Nema þær séu alveg hrikalega margar og þú manst ekki allt, þá geturu skrifað kannski um 3-4 þeirra.

Ég er ekkert að biðja um alveg hrikalega nákvæma lýsingu, en greinin má alls ekki vera of stutt. En ekki er öll von úti! Þær greinar sem eru of stuttar eru sendar í korkana, og það er ekkert verri staður en hver annar.

Þið þurfið alls ekki að gefa upp götuheiti og húsnúmer. Mér er allveg sama um það, og ef einhverjum er ekki sama um það þá er viðkomandi bara krípí stalker. Og við viljum ekkert svoleiðis.

Svo nú ætlar þú að setjast niður og skrifa eina sæta grein fyrir okkur, um íbúðirnar sem þú hefur búið í :)