Jú, í tilefni þess að átta greinar hafa borist á undanförnu ári, ætla ég að efna til greinaátaksins. Greinaátak.

Það er þema. Þemað er “Herbergið mitt”.
Þið skrifið grein um herbergið ykkar. Þið sendið hana inn, og ef hún er ekki algjör sori verður hún samþykkt. En ég treysti ykkur alveg, hef engar áhyggjur ;)

Þið getið skrifað um litina á herberginu, hvar þið keyptuð rúmið, hvernig gólfefni sé á herberginu, og svo framvegis og framvegis.

Nota bene: Ekki verða sár ef að greinarnar ykkar eru ekki samþykktar samdægurs. Við OfurKind erum bæði á leiðinni í frí í næstu viku, en reynum að kíkja við eins oft og mögulega.
Þannig að ég býst við að sjá haug af greinum þegar ég kem aftur úr fríinu!!


Farið nú og skrifið!