Þetta áhugamál hefur verið langt frá því að vera líflegt undanfarið þrátt fyrir að hafa upp á mjög breiðan umræðugrundvöll upp á að bjóða.

Ég er hér með að auglýsa eftir efni á /heimilið, þá sérstaklega greinar og myndir (erum ágætlega sett með kannanir eins og er).

Hérna er hægt að ræða allt sem viðkemur heimilinu og búskap, hvort sem um er að ræða hnífapör, heimilistæki, breytingar og flutninga eða hönnun og arkitektúr.

Ef einhver þarna er í föndri, þá endilega senda inn grein um það, það er eitthvað sem er gjaldgengt hérna inni :)

Ég er alveg handviss á því að hérna á huga er fullt af fólki sem hefur eitthvað til málanna að leggja á þessu áhugamáli, og það væri frábært ef þið mynduð nenna að skrifa inn greinar eða korka og deila með okkur hinum hvað þið eruð að hugsa um í sambandið við heimilið ykkar.

Ég vona að þessi “hjálparbeiðni” fái góðar undirtektir og að fleiri góðar greinar fari að koma inn ásamt myndum ofl.

Zaluki
———————————————–