Eftir því sem nær dregur jólum þá gerist alltaf og meira á þessu jólaáhugamáli. Bráðum kemur fyrsti sunnudagur í aðventu, þann 3. desember, og þá byrjar liðurinn Jólabarnið. Þar birtast svör notanda við nokkrum jólalegum spurningum, einn notandi á hverjum degi fram að þrettándanum, sem er 6. janúar.

Spurningarnar í ár eru þær sömu og í fyrra, samdar af Karat og ég held alveg örugglega að það sé í lagi að nota þær aftur. Kíkið á kubbinn hér á áhugamálinu, fyrir miðju til hægri, þar eru allar frekari upplýsingar. Svo er bara að senda spurningarnar og svörin sem PM á mig, ég sé um þennan lið.

Gangi ykkur vel, og byrjið að svara :}