Ágætu notendur


Mikið hefur borið á því að nokkrir notendur hafi verið með skítkast, dónaskap og þess háttar hér á áhugamálinu. Þetta er alls ekki í anda jólanna og algerlega tilgangslaust.
Þeir sem ekki hafa áhuga á jólaáhugamálinu eiga bara að halda sig frá því.
Það er heldur ekki viturlegt að vera að senda hingað inn tilgangslausa korka.

Ef þér finnst gaman á Huga skaltu ekki senda hingað inn tilgangslausa korka eða vera með skítkast. Slíkt þýðir umsvifalaust bann. Þetta mun verða framkvæmt samstundis.

Eins og sumir sáu í dag skrifaði ákveðinn notandi skítakork og var með persónulegt skítkast á mig. Sá notandi hefur fengið varanlegt bann á Huga.

Þetta er viðvörun - sú fyrsta og síðasta.

Við alla hina sem eru yndislegir og sem betur fer eru í meirihluta segi ég, endilega haldið áfram að senda inn myndir kannanir og fleira og afsakið að hafa þurft að lesa þessa tilkynningu. :)

Karat, stjórnandinn á Jólin.