Ég rakst á skemmtilega grein áðan á Mbl.is þar sem segjir frá því að Ísland sé með þeim topp tíu stöðum til að eyða jólunum á , hér er greinin:
Hér fyrir neðan er svo lýst lýsingu bandaríska tímaritsins hvað finnst ykkur um þessa lýsingu haha?
Tekið af http://mbl.is/mm/folk/frettir/2007/12/26/islendingar_i_alfabuningum/
:
Á vefsíðu tímaritsins Yes Weekly í Nýju-Karólínu í Bandaríkjunum eru nú taldir upp þeir 10 staðir þar sem best er að eyða áramótunum. Reykjavík er þar á meðal ásamt Times Square í New York, Rio de Janiero í Brasilíu, Amsterdam í Hollandi og fleiri heimsþekktum borgum.

Þegar lesin er lýsingin á því hvernig Íslendingar halda upp á gamlárskvöld læðist þó að íslenskum lesanda sá grunur, að ritstjórar Yes Weekly styðjist ekki við traustustu heimildir. Lýsingin er eftirfarandi:

„Það verður kalt á Íslandi á gamlárskvöld. Held ég. Er Ísland kaldi staðurinn? Það hlýtur að vera. Þeir kalla það Gamlarskrold og heimamenn fagna því með því að bjóða ferðamönnum inn á heimili sín, gefa þeim heitt að drekka, kveikja varðelda og ærslast um í álfabúningum. Alveg eins og í Hringadróttinssögu. Í kaupbæti, ef himininn er heiður, er hægt að sjá norðurljós þegar klukkan slær 12."


Haha að mínum mati er þetta fáranleg lýsing og er eiginleag bara lygi.