Þessi plata/diskur er alger snilld. Ég hlustaði oft á hann á plötu þegar ég var lítil og svo þegar ég sá hann á geisladisk þá stóðst ég það ekki og keypti hann.
Svo er ég bara heima núna í góðum fíling að rifja upp gamlar jólaminningar.

Bryndís Schram og Þórður húsvörður koma fram á disknum og er alger snilld, meðal annars er spilað lagið sem Stundin okkar endaði á þegar þau voru með hana.

Þorgeir Ástvaldsson og Bjartmar Guðlaugsson eru í hlutverkum Hurðaskellis og Stúfs.

Með jólakveðjum,
Xenia