Ég heyrði skemmtilega “jolly” jólalag í morgun á Xinu 977. Maður og kona syngja saman og minnir að það hafi verið einungis kassagítarspil undir. Held að þetta sé nýtt lag, hef alla veganna aldrei heyrt það áður. Konan syngur með mjög sérstakri röddu, frekar barnalegri.

Ein línan í laginu var e-ð um það að þau muni ekki koma um jólin en ætla að mæta um áramótin og halda partý þá.

Er búinn að leita á netinu en finn ekki neitt og sný mér því til ykkar jólasérfræðinganna. Einhver sem veit hvaða lag þetta er og hverjir flytja?

Veit að upplýsingarnar hjá mér eru frekar óljósar en ætla samt að reyna, er stórskemmtilegt lag… :)
I don´t have to be careful, I have a gun.