“Jólin, jólin, jólin koma brátt!…”

hehe, ég er komin í geðveikan jólafíling :D

Núna eru fyrstu jólin mín í eigin íbúð (reyndar á kærastinn hana, en við búum saman) og ég hlakka svo rosalega til að fara að skreyta :D

Reyndar er það svolítið ömurlegt að ég sé komin í svona svakalegann jólafíling þarsem ég á afmæli 24. nóvember og ég hef alltaf reynt að hafa fyrir sið að pæla ekkert í jólunum fyrr en afmælið mitt er búið… en ég er bara hreinlega að springa!!! :þ

En ekki misskilja… ég hlakka auðvitað líka til að eiga afmæli ;) The big 20 you see 8)

En það eru 36 dagar til jóla! WWWEEEEE!!!! :D

Mikið svakalega langar mig til að fara og kaupa helling af jólaskrauti… en ég verð að hemja mig í að minnsta kosti viku í viðbót ;)

Ég vona að þið skemmtið ykkur ÆÐISLEGA vel þegar þið byrjið að skreyta! ;)
En að mínu mati á ekki að byrja að skreyta fyrren 1. desember, og ég ætla að gera það… en kaupa skrautið fyrst ;)

æjj, ég er hætt núna! ;)
það er ömurlegt að vera peningalaus!