Jólagjafir eru mjög sniðug fyrirbæri að mínu mati :) En ég sendi þetta inn til þess að fá góðar hugmyndir að einhverjum sætum heimatilbúnum jólagjöfum :) (mamma mín tekur nefnilega ekki í mál að ég kaupi eitthvað handa henni (sem ég skil ekki ;) ) en ég er næstum búin með allar hugmyndir) Það er líka alltaf voða hlýlegt að fá svona heimatilbúið… kemur mér allavega bara í enn meira jólaskap :o) Ég ætla nú samt líka að kaupa eitthvað smá handa henni svo það væri æðislegt að fá hugmyndir um bæði heimatilbúnar og keyptar jólagjafir ;-)