Jæja var að vinna að eikkeru verkrfni og ákvað að senda það hingað inn bara til gamans.


Elsku jólasveinn
Ég, lítill nýfæddur hvolpur er með nokkrar óskir sem mér myndi þykja vænt um að fá uppfylltar.

Í fyrsta lagi væri mjög gott ef þú gætir fundið handa mér þægilegan og umhyggjusaman eiganda sem mun elska mig og mun vilja kúra með mér á dimmum vetrarkvöldum eftir langa göngutúra.

Í öðru lagi vil ég mjög mikið fá að vera í sambandi við systkini mín, sem mér þykir svo vænt um, eftir að það er búið að finna eiganda.

Í þriðja lagi væri gott að fá að hlaupa frjáls í garðinum og í húsinu án þess að krakkarnir á heimilinu séu að taka mig eitthvað mikið upp.

Í fjórða lagi þá langar mig í svona skó til að geta nagað

Takk elsku jólasveinn og ég vona að þú getir uppfyllt eitthvað af þessum óskum mínum.
Computer says no