Bandaríska tímaritið Forbes tekur jafnan saman lista yfir þá ríkustu í heiminum. Nú hefur blaðið útbúið lista yfir ríkustu ævintýrapersónurnar og komist að þeirri niðurstöðu að jólasveinninn sé þar í efsta sæti enda sé auður hans ekki mælanlegur enda gefi hann öllum börnum heims gjafir um hver jól.
Næst ríkastur er Richie Rich, sem m.a. hafa verið gerðar um kvikmyndir en hann erfði mikil auðæfi eftir föður sinn. Forbes metur eignir hans á 24,7 milljarða dala. Í þriðja sæti er Oliver Warbucks, auðkýfingurinn sem kemur Önnu í samnefndum söngleik til hjálpar, en Forbes metur eignir hans á 10 milljarða dala.

Jóakim frændi í Andabæ kann að vera ríkasta önd í heimi, en hann kemst þó aðeins í 4. sæti á lista Forbes. Jóakim, sem fór ungur frá Skotlandi til að freista gæfunnar við gullleit í villta vestrinu, er talinn eiga 8,2 milljarða dala.

Í 5. sæti er Thurston Howell III, persóna í sjónvarpsþáttunum Gilligans Island, en Forbes telur hann eiga 8 milljarða dala, jafn mikið og Willy Wonka sem á sælgætisverksmiðju. Í sjöunda sæti er Bruce Wayne, öðru nafni Leðurblökumaðurinn, sem berst við glæpamenn í Gothamborg en nokkuð óljóst er hvernig hann varð ríkur. Forbes telur hann eiga 6,3 milljarða dala.

Í áttunda sæti er Lex Luthor, erkióvinur Ofurmennisins, en eignir Luthors eru metnar á 4,7 milljarða. Í 9. sæti er J.R. Ewing, skúrkurinn úr sjónvarpsþáttunum um Dallas, en eignir hans eru taldar vera 2,8 milljarðar. Í 10. sæti kemur síðan Auric Goldfinger, sem James Bond atti kappi við í samnefndri bók og kvikmynd en eignir hans eru metnar á 1,2 milljarða dala.

Sænska blaðið Dagens Nyheter fjallar um þennan lista í dag og er nokkuð móðgað yfir því að Lína langsokkur skuli ekki komast á hann.

WWW.MBL.IS

<br><br><b>
<font color=“DarkPink”>Draco Dormiens Nunquam Titillandu
Aldrei að kitla sofandi dreka!!</font>

<font color=“Red”>I </font><font color=“BLUE”>a</font><font color=“Green”>n</font><font color=“Yellow”>d </font><font color=“RED”>F</font><font color=“BLUE”>r</font><font color=“GREEN”>i</font><font color=“YELLOW”>e</font><font color=“RED”>n</font><font color=“BLUE”>d</font><font color=“GREEN”>s </font><font color=“YELLOW”>R</font><font color=“RED”>o</font><font color=“BLUE”>c</font><font color=“GREEN”>k</font>

<font color=“Green”>
Kíkjið á kasmírinn minn <a href="http://kasmir.hugi.is/vinny">http://kasmir.hugi.is/vinny</a>

</font>



</