Hversu snemma hafið þið verið að baka fyrir jólin?
Málið er að ég þarf að baka verulega snemma því ég á að eiga barn í byrjun janúar, og verð því ekki til stórræðanna í Desember..
Það sem ég er að velta fyrir mér er geymsla.. kemur ekki aukabragð af frostgeymslu?? Varla get ég geymt þær bara í makkintoss dollunum..
Svo auðvitað það að baksturinn hefur alltaf verið svo stór hluti af jólaundirbúningi.. hlusta á jólatónlist og koma sér í virkilegt jólastuð!
Ef þú hefur einhverntíman þurft að gera þetta svona snemma og samt komist í jólastuðsbakstur, endilega tjáðu þig!!!