Já þar sem er nú komið fram í mars og svona þá finnst mér kominn tími til að fara að undirbúa jólin, ég meina þó það nú væri.
Jólin eru mikill annatími og því er gott að byrja að undirbúa þau snemma. Sjálfur fer ég í febrúar og vel mér jólatré og planta því síðan í garðinum og tek það upp 22. desember.
Rjúpurnar skít ég árið áður og kæsi þær í eitt ár. Jólakonfekt bý ég til og mundi ég setja uppskriftina hérna ef ég myndi hana.
Ég vil því óska öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Kveðja