Ég man nú ekki röðina af öllum jólasveinunum þess vegna fór ég á lei.is og leitaði af upplýsingum. Mig langaði að setja það hérna inn, því það eru örugglega margir í vandræðum hver á að koma næst. En röðin er þessi.

12 desember
Stekkjastaur

13 desember
Giljagaur

14 desember
Stúfur

15 desember
Þvörusleikir

16 desember
Pottasleikir

17 desember
Askasleikir

18 desember
Hurðaskellir

19 desember
Skyrgámur

20 desember
Bjúgnakrækir

21 desember
Gluggagægir

22 desember
Gáttaþefur

23 desember
Ketkrókur

24 desember
Kertasníkir





Ég á 2 uppáhalds jólasveina, það eru þeir Hurðaskellir (því hann skellir hurðum eins og ég er vön að gefa)
og Kertasníkir (það eru ýmsar ástæður afhverju hann er í uppáhaldi!)

Hver/hverjir er/eru uppáhalds jólasveinninn/jólasveinarinir
þinn/þínir ?????