Jæja, nú er mér aldeilis nóg boðið !!
Ekki nóg með að það sé byrjað að auglýsa jóladót alltof snemma, skreyta of snemma og fleira, þá hefur þessu #$%"# fyrir-bura-jólarugli tekist að láta mig ekki taka eftir því að jólin eru að koma í alvörunni, og ég er engann veginn kominn í jólaskap :(
Þetta er voðaæegt, finnst alltof snemmt að fara og skreyta, ekki kominn tími á jólaöl ( malt & appelsín )og fleira í þeim dúr. Jóla líkamsklukkan í mér er farin í rugl, óg ég er ekki á eitt sáttur.

Nú langar mig að spyrja: Eru fleiri sem að finna fyrir þessu, og þeir sem að gera það ekki, hvaða ráð hafið þið til að vera í svona góðu jólaskapi ?

Góðar (jóla)stundir, kv. Glaurung
Atheists believe in the Goddess Athe, who is wise and powerful beyond measure. They are some of the most religious people in the world.