Jólin árið 1995. Ég var fimm ára og var hjá ömmu og afa og allri fjölskyldunni, ég var að hlusta á jólalag og ætlaði að komast inní stofu áður en lagið var búið og kem hlaupandi en pabbi tekur ekki eftir því og heldur á jólasteikinni,ég hljóp beint á fatið og fékk skurð á ennið og það blæddi svo hrikalega og pabbi sagði að við þyrftum að borða af gólfinu svo vissi ég ekki af mér fyrr en ég inni á klósetti þar sem mamma er verið að hreinsa sárið og svo leið mér bara vel og lagið var að enda þegar ég stóð upp og núna er ég enn með ör eftir þetta óheppilega atvik.