hvað er jóli að gefa í skóinn í ár ? Jæja, mig langaði að forvitnast hvað jóli gamli er að setja í litla sæta skó í ár.

málið er nefninlega að ég fór í heimsókn til kunningja minna núna um daginn og þau eiga eina unga dömu og mér brá þegar hún sagði mér hvað jóli gaf í skóinn þá nóttina… DVD-mynd…

ég man ekki betur en að ég hafi verið alveg svaka ánægða með að fá dúkkukjól eða sokka og skó á uppáhaldsdúkkuna mína eða bara mandarínu… ég spjallaði aðeins við jólasveinkuna mína fyrr í kvöld og fékk að vita að þessar minningar mínar væru alveg réttar.

en hvað er verið að setja í litla skó í ár ?

kv
*krúsídúllan*