Jólin eru liðin Kæru jólabörn og aðrir notendur.

Nú eru jólin liðin og væntanlega verður eitthvað lítið um að vera á þessu áhugamáli í nánustu framtíð. Ég vil þakka öllum þeim sem voru duglegir að heimsækja áhugamálið í vetur og um jólin kærlega fyrir. Ég mun halda áfram að breyta áhugamálinu, setja inn nýjar kannanir og myndir öðru hvoru svo að mestu jólabörnin ættu endilega að líta við öðru hverju og þeir sem hafa áhuga geta sent inn eitthvað efni. Að minnsta kosti verður fylgst með.
Ég vil óska ykkur öllum gleðilegs árs og að þið megið varðveita jólaandann í hjörtum ykkar allt árið.

Jólakveðjur; Karat, stjórnandi á jólaáhugamálinu.