Óskalisti Barbie


Kæri Jólasveinn,


Hlustaðu nú litli feiti ljóti dvergur. Ég hef hjálpað þér öll þessi ár og
verið besta og fullkomnasta jólagjöfin, komið fram í misjöfnum veðrum í
efnislitlum gervibaðfötum og ég get sagt þér, það hefur oft verið hræðilega

kalt.


Mér finnst leiðinlegt að segja það en jólasveinn, ég finn mig ekki í þessu
lengur!!!!


Nú er kominn tími til að breyta til um þessi jól. Ef það gerist ekki mun ég

sjá til þess að það verði haldnar Barbie brennur um allt land. Ég gæti nú
trúað að þér þyki fnykurinn af þeirri brennu ekki eftirsóknarverður.


Jæja jólasveinn, hér er þá óskalistinn í ár:


Mig langar í:


1. Mjúkar bómullar stuttbuxur, og stóran víðan háskólabol í stíl. Ég er
hundleið á að líta út eins og mella. Eru engin takmörk á því hve baðfötin
geta verið lítil og vesældarleg? Og meðal annarra orða, veistu hvernig það
er að hafa nylonbuxur með frönskum rennilás inni í rassaborunni?


2. Raunveruleg nærföt sem auðvelt er að fara í. Helst hvít. Hvaða bölvaður
asni ákvað að framleiða þessa nærfataeftirlíkingu sem festist við húðina á
mér þannig að það lítur út fyrir að ég sé með appelsínuhúð?


3. Svo vil ég fá alvöru KARLMANN!! T.d. Action man. Ég er orðin svo
hundleið
á þessum væmna aumingja honum Ken. Og svo er hann kominn með eyrnalokk,
ekki
skánar hann við það. Ég þjáist að vera nálægt honum. Í Guðs bænum, getur þú

ekki skapað hann líffræðilega rétt og með tilheyrandi tólum?


4. Ég óska mér að fá handleggi sem ég get beygt svo ég geti ýtt áðurnefndum

Ken-ræfli frá mér, þegar búið er að útbúa hann rétt.


5. Ég vil fara í brjóstaMINNKUN. Mér er alveg sama hvort þú þarft að snúa
upp á handleggi á e-jum lækni. Ég vil fara í brjóstaminnkun.


6. Íþróttabrjóstahaldara til að nota þangað til ég fer í brjóstaminnkun.


7. Nýtt starf. Dýralæknir eða kennari er algerlega out. Hvernig líst þér á
að ég verði kerfisfræðingur, verðbréfasali eða vinni við almannatengsl?


8. Nú verður þú að fara að skapa 2001 karakterinn. T.d. fyrirtíðaspennu
Barbie, fylgihlutir með henni gætu verið poki með kartöfluflögum og lítil
askja með súkkulaðibitakökum og rjómaís. Nú eða Hættu að reykja Barbie, með

Nikótín plástri og tyggjó.


9. Að lokum, það er nú kominn tími til að ég fái að kaupa hlutabréf í
fyrirtækinu (Mattel). Ég er búin að vera hér í 42 ár svo mér finnst þetta
ekki ósanngjörn krafa. Ég meina það Jóli.


Jæja, þetta er nú það sem ég fer fram á. Þegar tekið er tillit til
verðmætaskapandi framlags míns til samfélagsins finnst mér þetta
sanngjarnar
kröfur. Ef þú gengur ekki að þeim skaltu bara finna þér einhverja gæru til
að taka við um næstu jól. Svo einfalt er það!


Þín einlæg Barbie.
I did not have sexual relationship with this woman.