Jólabarnið =D Hæ jólahugarar!
Ég var að spá. Núna er kominn annar sunnudagur í aðventu en samt finnst mér þetta áhugamál ekki vera nógu lifandi :)
Það náttúrulega vantar jólabarnið sem að er náttúrulega soldið fúlt. En þessvegna datt mér í hug fyrst að stjórnendurnir eru svona uppteknir við prófalestur getum við bara sjálf gert þetta :p

Maður svarar semsagt þessum spurningum:(söm og í fyrra)
1. Huganafn?
2. Aldur?
3. Kyn?
4. Atvinna/Nám?
5. Stig á jólin?
6. Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn?
7. Ertu búin/n að vera þæg/ur í ár?
8. Hefurðu fengið kartöflu í skóinn?
9. Hvað borðar þú á jólunum?
10. Notið þið alvöru jólatré eða gervitré?
11. Hefur jólakötturinn heimsótt þig?
12. Hvernig er föt jólasveinsins á litinn?
13. Hvað finnst þér um áhugamálið jólin?

Svo sendiru bara inn, en það væri sniðugt ef að ekki fleiri en tveir myndu senda inn svör sama dag. Semsagt tvö jólabörn á dag framað áramótum! Hvernig væri það?

-erlam89